
Uppsetning með CA-153P rafmagnssnúru og CA-161
beintengisnúru
Í þessari uppsetningu er tengikassinn tengdur við bílútvarpið með
CA-153P rafmagnssnúru og CA-161 beintengisnúru og hátalarar
bílútvarpsins eru notaðir fyrir símtöl.
1. Tengdu víra CA-153P rafmagnssnúrunnar við bílinn
á eftirfarandi hátt:
• Svarta vírinn við jörð í ökutækinu.
• Rauða vírinn við varanlegt 12 V. Alltaf skal tengja 2 A öryggi
við þessa línu, nálægt uppruna.
CK-200
CA-134

U p p s e t n i n g
42
• Bláa vírinn við svisslínu eða ACC-línu (aukabúnaðarlínu). Alltaf
tengja 1 A öryggi sem fylgir með við þessa línu, nálægt uppruna.
• Gula vírinn við inntak bílútvarpsins til að lækka í hljóði.
2. Tengdu CA-161 beininntakssnúruna við viðeigandi tengi
á bílútvarpinu og tengikassanum.
3. Tengdu skjáinn við viðeigandi tengi á tengikassanum.
Í sumum bílum gæti þurft að kveikja á bílútvarpi til að heyra
í hljóði símtals.
Valfrjáls atriði:
• Tengdu samhæfa hleðslusnúru (svo sem Nokia CA-134) við
tengikassann til að hlaða samhæfan farsíma með bílbúnaðinum.
• Til að nota ytri hljóðnema (svo sem Nokia MP-2) í stað þess
innbyggða skaltu tengja hljóðnemann við viðeigandi tengi
á tengikassanum og breyta stillingu hljóðnema
(sjá „Uppsetningarstillingar“, bls. 42). Einnig gæti þurft að nota
ytri hljóðnema í miklum hávaða.