
Umhirða og viðhald
Í bílbúnaðinum fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega
með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
•
Halda skal bílbúnaðinum þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta
innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar.
•
Hvorki má nota né geyma bílbúnaðinn á rykugum eða óhreinum stöðum.
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
•
Ekki skal reyna að opna bílbúnaðinn.
•
Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til
þess að þrífa hluta bílbúnaðarins. Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran
klút til að hreinsa yfirborð tækisins.
•
Ekki skal mála hluta bílbúnaðarins. Málningin getur fest hreyfanlega hluti
tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi sorp- og
endurvinnslustöð. Þannig geturðu dregið úr óflokkaðri sorplosun og stuðlað
að endurvinnslu. Fáðu upplýsingar um umhverfisvernd og hvernig hægt er að
endurvinna Nokia vörur á www.nokia.com/werecycle eða nokia.mobi/werecycle.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni,
bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað
og rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar
að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan Evrópusambandsins.
Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Frekari upplýsingar
varðandi umhverfismál er að finna í Eco-yfirlýsingu fyrir vöruna
á www.nokia.com/environment.

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
45